Það er myndarleg helgi framundan hjá Ísfirðingum sem í fimm daga ferð verða með báða meistaraflokka sína í og við höfuðstaðinn Reykjavík. Karlalið KFÍ tók æfingu í DHL Höll þeirra KR-inga í morgun en liðið mætir Fjölni í Domino´s deild karla í kvöld í Dalhúsum. Karlaliðið mætti til Reykjavíkur seint í gærkvöldi og helgin framundan er strembin hjá KFÍ.
Á laugardag fer kvennalið KFÍ í Hveragerði og mætir þar ósigriðum Hamarskonum í 1. deild. Kvennaliðið verður svo aftur á ferðinni á sunnudag þegar liðið mætir öðru Suðurlandsliðinu í 1. deild og þennan daginn á Laugarvatni.
Karlalið KFÍ leikur svo aftur í Domino´s deildinni á sunnudagskvöld gegn Skallagrím í Borgarnesi kl. 19:15.
Ansi myndarleg útgerð á Ísfirðingum þessa helgina en meðfylgjandi mynd ,,hnupluðum” við af Facebook-síðu Guðjóns M. Þorsteinssonar en hann fylgir liðinu jafnan fast eftir.
Mynd/ Frá æfingu KFÍ í DHL Höllinni í morgun.