Tryggvi Snær Hlinason og Bilbao lögðu Breogan í ACB deildinni á Spáni í dag, 90-72.
Á 18 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Tryggvi Snær 10 stigum, 7 fráköstum, stoðsendingu og 3 vörðum skotum.
Leikurinn var sá fyrsti sem Bilbao leikur í deildinni þetta tímabilið, en næst eiga þeir leik gegn Murcia þann 5. október.