spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaTímabilið á enda hjá Martin

Tímabilið á enda hjá Martin

Martin Hermannsson mun ekki leika meira með Alba Berlin á tímabilinu vegna vöðvameiðsla í kálfa. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum í dag.

Fréttirnar komu rétt fyrir oddaleik Alba Berlin gegn Chemnitz Niners í undanúrslitum þýsku úrvalsdeildarinnar, en þann leik unnu þeir og er liðið því á leiðinni í úrslitaeinvígi gegn Bayern Munich um Þýskalandsmeistaratitilinn.

Fréttir
- Auglýsing -