Fyrr í dag greindi Karfan frá því að Þróttur hafi dregið lið sitt úr keppni í úrslitakeppni fyrstu deildar karla.
Rétt í þessu sendi félagið frá sér tilkynningu sem má sjá hér fyrir neðan, en í henni greinir félagið meðal annars frá áætlunum sínum um að halda sæti sínu í fyrstu deildinni á komandi tímabili.
Tilkynning:
Stjórn Körfuknattleiksdeildar Þróttar Vogum hefur ákveðið að draga meistaraflokk úr keppni í úrslitakeppni 1. deildar karla.
Við viljum þakka allan þann stuðning sem við höfum fengið á tímabilinu og horfum bjartsýn til framtíðar þar sem meistaraflokkur Þróttar stefnir á taka þátt í 1. deildinni aftur í haust.
Þessi ákvörðun er ekki tekin af neinni léttúð heldur að vel yfirlögðu ráði þar sem allir mögulegir kostir hafa verið rækilega skoðaðir og ræddir í þaula. Meistaraflokkur Þróttar á að baki fjögur ár og fór upp um tvær deildir á stuttum tíma. Félagið þurfti að spila heimaleiki sína utan Voga þar sem heimavöllur liðsins var ekki löglegur í 1. deild. Auk þess er töluvert meiri vinna og kostnaður að halda úti liði í 1. deild, vinna sem við gerðum okkur ekki grein fyrir og starfsemi deildarinnar stækkaði hratt og það varð okkur að falli þrátt fyrir að liðið tryggði sig inn í úrslitakeppni með sannfærandi hætti.
Þróttur mun eiga spjall við KKÍ næstu vikurnar um framhald körfuboltastarfsins hjá okkur hér í Vogum.
Körfuknattleiksdeild Þróttar vill þakka leikmönnum, þjálfurum, stuðningsmönnum, KKÍ og aðalstjórn UMFÞ fyrir ánægjulegt samstarf í vetur.
Fyrir hönd Þróttar, Axel Ingi Auðunsson formaður Körfuknattleiksdeildar Þróttar.