Keflavík lagði Fjölni í Blue höllinni í kvöld í fyrsta leik 8 liða úrslita Subway deildar kvenna, 83-58. Keflavík er því komið með fyrsta sigurinn, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig í undanúrslitin.
Karfan spjallaði við Sverrir Þór Sverrisson þjálfara Keflavíkur eftir leik í Blue höllinni.