Russel Westbrook og Kevin Durant hnoðuðu saman í 63 stig í nótt þegar lið þeirra Oklahoma Thunder gersamlega kafsilgdu meistara Golden State Warriors í þriðja leik liðana í úrslitum vesturdeildarinnar. 133:105 varð lokaniðurstaða kvöldsins og Oklahoma leiða nú einvígið 2:1. Stephen Curry skoraði 24 stig fyrir Warrirors og honum næstur var Klay Thompson með 18 stig. Liðin spila aftur á morgun í Oklahoma.