Sá tími sem háskólaboltinn er í hávegum hafður er nú runninn í garð. March Madness hófst í gær og sem fyrr eru minni spámenn að slá út stærri og sterkari andstæðinga. Í gær varð slíkt "upset" þegar Baylor háskólinn tapaði gegn liði Yale 79:75. Einn af máttarstólpum liðs Baylor, Taurean Prince sat fyrir svörum blaðamanna eftir leik og svaraði spurningum. Þegar blaðamaður spurði hann hvernig andstæðingar þeirra hafi náð fleiri fráköstum en þeir svaraði Prince á þann máta sem að Greg Popovich þjálfari SA Spurs er vanur að svara.