21:30
{mosimage}
Valur Ingimundarson er sá þjálfari sem hefur unnið flesta sigra
Eins og lesendur karfan.is hafa fengið að fylgjast með eru flest lið að verða búin að ganga frá þjálfaramálum sínum fyrir næsta vetur.
Hér kemur listi yfir félögin sem munu leika í Iceland Express deild karla á næsta ári og hvernig staðan er á þjálfaramálum þeirra. Fyrir aftan er árangur þjálfarans í fyrra og svo heildar árangur í Úrvalsdeild frá upphafi.
Fjölnir Bárður Eyþórsson (3-17 / 59-49)
Grindavík Friðrik Ragnarsson (12-10 / 72-38)
Hamar Pétur Ingvarsson (8-14 / 74-102)
ÍR Jón Arnar Ingvarsson (8-6 / 23-49)
Keflavík Sigurður Ingimundarson (12-10 / 162 – 58)
KR Benedikt Guðmundsson (17-5 / 74-46)
Njarðvík Ekki vitað en Valur Ingimundarson og Teitur Örlygsson hafa verið nefndir til sögunnar
Skallagrímur Ekki ljóst en Valur Ingimundarson hefur óskað eftir að vera í fríi næsta vetur en hann á ár eftir af samningi sínum.
Snæfell Geoff Kotila (17-5 / 17-5)
Stjarnan Bragi Magnússon (Voru í 1. deild / 0-0)
Tindastóll Ekkert heyrst, en reikna má með að Kristinn Friðriksson haldi áfram
Þór Ak Hrafn Kristjánsson (Voru í 1. deild / 11-33)
Hér kemur tölfræði þeirra þriggja sem nefndir eru en ekki er komið á hreint enn með.
Kristinn Friðriksson (6-16/ 35-41)
Teitur Örlygsson (Var ekki að þjálfa / 25-14)
Valur Ingimundarson (16-6 / 228-142)
Mynd: www.vf.is