Sjötta umferð Subway deildar kvenna fer af stað í kvöld með þremur leikjum.
Öll lið deildarinnar eiga leik nema Valur og Haukar, en leikur þeirra frestast vegna þátttöku Hauka í Fiba EuroCup þar sem þær eiga leik á morgun.
Í Borgarnesi tekur Skallagrímur á móti Njarðvík, Breiðablik heimsækir Keflavík og í Dalhúsum eigast við Fjölnir og Grindavík.
Leikir dagsins
Subway deild kvenna
Skallagrímur Njarðvík – kl. 18:15
Keflavík Breiðablik – kl. 19:15
Fjölnir Grindavík – kl. 20:15