spot_img
HomeFréttirÞriðji deildarsigur MBC í röð

Þriðji deildarsigur MBC í röð

Hörður Axel Vilhjálmsson og lið hans MBC í þýsku Bundesligunni unnu í gær sinn þriðja deildarleik í röð þegar Art.Dragons komu í heimsókn. Lokatölur voru 87-83 MBC í vil þar sem Hörður gerði 16 stig.
 
Hörður var í byrjunarliðinu og skoraði 16 stig eins og áður segir, hann lék í 33 mínútur og var einnig með 6 fráköst, 4 stoðsendingar og einn stolinn bolta.
 
MBC er nú búið að klifra upp í 14. sæti þýsku úrvalsdeildarinnar eftir fremur dapra byrjun sem nýliðar í Bundesligunni.
  
Fréttir
- Auglýsing -