Elvar Már Friðriksson og Maroussi máttu þola þriggja stiga tap gegn Norrkoping Dolphins í FIBA Europe Cup í kvöld, 74-71.
Á rúmum 32 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 13 stigum, 4 fráköstum, 4 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.
Eftir leikinn er Maroussi í öðru sæti riðils síns með tvo sigra og tvö töp það sem af er keppni.