Helena Sverrisdóttir náði sinni þriðju þrennu í vetur í sigri Hauka á Val í Domino's deild kvenna í kvöld. Hún skoraði 16 stig, tók 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Undirritaður spáði því fyrir skömmu að Helena næði 13 þrennum í vetur og er hún nú komin með þrjár í 5 leikjum.
Ég ætla að spá því að Helena Sverrisdóttir nái 13 þrennum í vetur. Er það að ykkar mati raunhæft? #korfubolti
— Hörður Tulinius (@HordurTulinius) October 29, 2015
Domino's deild karla:
16/10/2015 – Jón Axel Guðmundsson, Grindavík – 16 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar – Sigur
18/10/2015 – Jón Axel Guðmundsson, Grindavík – 24 stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar – Sigur
Domino's deild kvenna:
24/10/2015 – Helena Sverrisdóttir, Haukar – 17 stig, 17 fráköst og 13 stoðsendingar – Sigur
28/10/2015 – Helena Sverrisdóttir, Haukar – 15 stig, 12 fráköst og 12 stoðsendingar – Sigur
28/10/2015 – Chelsie Schweers, Stjarnan – 27 stig, 10 fráköst og 10 stoðsendingar – Tap
04/11/2015 – Helena Sverrisdóttir, Haukar – 16 stig, 12 fráköst og 10 stoðsendingar – Sigur
1. deild kvenna:
11/10/2015 – Guðrún Ósk Ámundadóttir, Skallagrímur – 10 stig, 10 fráköst og 11 stoðsendingar – Sigur
Þrennukóngar og -drottningar ársins:
Helena Sverrisdóttir, Haukar: 3
Jón Axel Guðmundsson, Grindavík: 2
Chelsie Scweers, Stjarnan: 1
Guðrún Ósk Ámundadóttir, Skallagrímur: 1