spot_img
HomeFréttirÞorvaldur og Orri eru nýliðar landsliðshóps Íslands "Gæti ekki verið betra"

Þorvaldur og Orri eru nýliðar landsliðshóps Íslands “Gæti ekki verið betra”

Ísland tekur á móti Georgíu í fyrri leik 2. glugga seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins 2023 annað kvöld föstudag 11. nóvember.

Fyrir leikinn er staða Íslands nokkuð sterk í L riðil, liðið er með fjóra sigra, tvö töp og er í 3. sæti, en efstu þrjú lið riðilsins komast á lokamótið, en sigur annað kvöld myndi fara langleiðina með að tryggja farmiðann. Seinni leikur gluggans er svo þremur dögum síðar 14. nóvember gegn Úkraínu á þeirra velli í Lettlandi.

Hérna er 16 leikmanna hópur Íslands

Hérna er heimasíða mótsins

Karfan kom við á æfingu liðsins í gær og spjallaði við Þorvald Orra Árnason og Orra Gunnarsson nýliða í íslenska landsliðshópnum. Þorvaldur og Orri eru á sama aldri og hafa leikið saman með yngri landsliðum Íslands. Báðir voru þeir valdir í fimm manna úrvalslið U20 Evrópumóts síðasta sumars, er Ísland hafnaði í öðru sæti.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -