7:00
{mosimage}
Eins og karfan.is greindi frá fyrir skömmu var Þorsteinn Húnfjörð á leið suður yfir heiðar eftir 3 ár með Þór Ak. Nú eru mál Þorsteins komin á hreint og mun hann leika með ÍR ingum næsta vetur.
Þorsteinn er nýlega orðinn þrítugur og hóf ferilinn með Keflavík en hefur einnig leikið með Njarðvík í Úrvalsdeild sem og Þór Ak. Hann lék með háskólaliði í Bandaríkjunum og var einnig um tíma í Noregi. Hann hefur leikið 68 leiki í Úrvalsdeild og skoraði 4,4 stig að meðtali. Frá þessu er greint á heimasíðu ÍR.
Mynd: www.thorsport.is