spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaÞórsarar kjöldregnir með 66 stigum á Héraði

Þórsarar kjöldregnir með 66 stigum á Héraði

Bónus deildar lið Hattar kjöldró fyrstu deildar lið Þórs Akureyri í æfingaleik á Egilsstöðum í gær, 114-48, en bæði lið undirbúa sig þessa dagana fyrir komandi tímabil sem hefst um næstu mánaðarmót. Samkvæmt heimildum Körfunnar var leikur gærkvöldsins aldrei neitt sérstaklega spennandi, þar sem heimamenn í Hetti voru komnir með 17 stiga forskot við lok fyrsta fjórðungs og bættu svo bara í til loka leiksins.

Stigahæstur heimamanna í leiknum var Courvoisier Mccauley með 18 stig. Honum næstir voru Gustav Suhr Jessen og Adam Eiður Ásgeirsson með 17 stig hvor, David Guardia Ramos með 12 stig, Nemanja Knezevic með 11 stig og Eysteinn Bjarni Ævarsson með 10 stig.

Fyrir Þór Akureyri var það Reynir Róbertsson sem dró vagninn með 20 stigum og Baldur Jóhannesson og Smári Jónsson voru með 9 stig hvor.

Tekið skal fram að alla erlenda atvinnumenn vantaði á skýrslu hjá liði gestana frá Akureyri í þessum leik.

Tölfræði leiks

Fréttir og tölfræði úr æfingaleikjum má senda á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -