Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Nebraska Cornhuskers máttu þola tap í nótt fyrir Maryland Terrapins í bandaríska háskólaboltanum, 50-64. Nebraska eftir leikinn í 14. sæti Big Ten deildarinnar með fimm sigra og þrettán töp það sem af er tímabili.
Á 15 mínútum spiluðum í leik næturinnar komst Þórir ekki á blað í stigaskorun, en hann skilaði 2 fráköstum, stoðsendingu og stolnum bolta. Nebraska mætir Maryland í öðrum leik nú í nótt.