Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Landstede Hammers máttu þola tap í kvöld fyrir Den Helder Suns í hollensku BNXT deildinni, 77-74.
Eftir leikinn eru Hammers í 6. sæti deildarinnar með átta sigra og fimm töp það sem af er tímabili.
Á tæpum 34 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir 15 stigum, 10 fráköstum, 2 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Næsti leikur Þóris og Hammers er þann 9. janúar gegn Feyenoord.