Þóranna Kika Hodge Carr og Iona Gaels töpuðu fyrir Manhattan Jaspers í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 59-64.
Það sem af er tímabili hefur Iona unnið tvo leiki og tapað átta.
Á 27 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þóranna tveimur stigum, tveimur fráköstum og stoðsendingu.
Næsti leikur Þórönnu og Iona er á morgun laugardag 15. janúar gegn Quinnipiac Bobcats.