spot_img
HomeFréttirÞór vann Icelandic Glacial mótið

Þór vann Icelandic Glacial mótið

Icelandic Glacial mótið, sem er samstarfsverkefni Körfuknattleiksdeildar Þórs og Icelandic Glacial, fór fram í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn um helgina. 

Haukar, Skallagrímur og Stjarnan léku ásamt heimamönnum og var leikið föstudag, laugardag og sunnudag og léku allir við alla.

 

Eitthvað var um að það vantaði leikmenn hjá liðunum og voru t.d. bæði Haukar og Stjarnan án Bandaríkjamanna, auk þess sem Hlynur Bæringsson er með landsliðinu um þessar mundir svo eitthvað sé nefnt.

 

Úrslit leikja mótsins:

 

Föstudagur  9.september:
Haukar – Skallagrímur:  85 – 88
Stjarnan – Þór Þ: 66 – 74

 

Laugardagur 10.september:
Stjarnan – Haukar: 86 – 59
Þór Þ – Skallagrímur: 95 – 87

 

Sunnudagur 11.september:
Skallagrímur – Stjarnan: 80 – 86
Haukar – Þór Þ: 75 – 80

 

Lokaniðurstaðan:

Þór Þ – 6 stig
Stjarnan – 4 stig
Skallagrímur – 2 stig
Haukar – 0 stig

 

 

Fréttir
- Auglýsing -