spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaÞór semur við lykilleikmenn fyrir komandi átök

Þór semur við lykilleikmenn fyrir komandi átök

Þór Akureyri hefur samið við Evu Wium Elíasdóttur og Hrefnu Ottósdóttur fyrir komandi tímabil í Bónusdeild kvenna.

Báðar hafa þær verið leikmenn Þórs síðustu þrjú tímabil og voru í stórum hlutverkum í liðinu er það vann sig upp úr fyrstu deildinni og lék í efstu deild á síðustu leiktíð. Eva skilaði 10 stigum, 4 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik á síðustu leiktíð á meðan að Hrefna var með 10 stig og 3 fráköst að meðaltali í leik. Báðar voru þær í æfingahópi A landsliðs kvenna sem æfði nú í sumar.

Fréttir
- Auglýsing -