Sameinað lið Hamars og Þórs varð á dögunum Íslandsmeistari í 12. flokki kvenna eftir sigur gegn KR á heimavelli í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn. Þór/Hamar vann einvígið 2-0, fyrri leikinn á Meistaravöllum og svo þann seinni eftir nokkra spennu í Þorlákshöfn, 65-56. Þjálfari liðsins er Hákon Hjartarson.
Hildur Björk Gunnsteinsdóttir var valin verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hún skilaði 17 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik í úrslitaeinvíginu.
Mynd / KKÍ