spot_img
HomeFréttirÞór Ak búið að tryggja sér sæti í Iceland Express deildinni að...

Þór Ak búið að tryggja sér sæti í Iceland Express deildinni að ári

8:13

{mosimage} 

Þór Akureyri tryggði sér sæti í Iceland Express deildinni að ári á föstudag. Leikmenn liðsins voru þó í rólegheitum norður á Akureyri en það var í Garðabæ sem sæti þeirra var tryggt.

Þar sigraði Stjarnan Breiðablik 89-59 og þar með er ekkert lið sem getur náð toppsæti 1. deildarinnar af Þórsurum. Baráttanum sætin fjögur í úrslitakeppni deildarinnar er farin að skýrast og lítur allt út fyrir að þar verði Breiðablik, Valur, FSu og Stjarnan. Ísfirðingar eiga þó möguleika og gæti leikur þeirra gegn Stjörnunni í Garðabæ í lokaumferð deildarinnar orðið úrslitaleikur um síðasta sætið.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -