Bob McKillop þjálfari Davidson háskólans verður aðalfyrirlesarinn á Þjálfaranámskeiði KKÍ dagana 1-3 júní næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ.
Á heimasíðu KKÍ segir: „Bob McKillop hefur verið aðalþjálfari Davidson háskólans í NCAA undanfarin 29 ár eða frá árinu 1989. Bob var meðal annars þjálfari Stephen Currys á sínum tíma, sem er ein stærsta stjarnan NBA-deildarinnar í dag, og er auðvitað núverandi þjálfari Jón Axels Guðmundssonar, sem leikur með liðinu við góðan orðstír þessa dagana. Liðið komst í 64-liða úrslit háskólaboltans í ár sem dæmi.“
Skráning og þátttökugjald:
Skráning er hafin á kki.is hérna en allir sem skrá sig fyrir 18. maí fá þátttökugjaldið á 25.000 kr. en eftir það verður það 30.000 kr.