Fyrsta deild karla kláraðist í kvöld með sex leikja lokaumferð.
Eftir leiki kvöldsins er ljóst að það verður KR sem fer beint upp í Subway deildina, en lið í sætum 2 til 9 munu bítast um hitt sætið í úrslitakeppni.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða viðureignir verða í fyrstu umferð úrslitakeppni fyrstu deildar karla, en hún rúllar af stað föstudag 5. apríl.
ÍR – Selfoss
Fjölnir – ÍA
Þróttur – Sindri
Skallagrímur – Þór Akureyri