spot_img
HomeFréttirÞetta er liðið sem mætir Tyrklandi í fyrsta leik forkeppni Ólympíuleikanna -...

Þetta er liðið sem mætir Tyrklandi í fyrsta leik forkeppni Ólympíuleikanna – Í beinni útsendingu á RÚV kl. 17:00

Íslenska karlalandsliðið mætir Tyrklandi kl. 17:00 í kvöld í beinni útsendingu á RÚV í fyrsta leik sínum í forkeppni Ólympíuleika 2024. Leikurinn er sá fyrsti af þremur sem liðið mun leika í Istanbúl á næstu fjórum dögum, en samkvæmt skipulagi mótsins þarf liðið að vera í efstu tveimur sætum riðils síns til þess að eiga þess kost að leika undanúrslit og síðan úrslitaleik um sæti í undankeppninni.

Leikir Íslands í riðlakeppni mótsins í Tyrklandi:

12. ágúst gegn Tyrklandi

13. ágúst gegn Úkraínu

15. ágúst gegn Búlgaríu

Hérna er heimasíða mótsins

Hérna er lið Tyrklands í kvöld

Möguleikar Íslands á að tryggja sér farmiða á Ólympíuleikana í París

Hér fyrir neðan eru þeir 12 leikmenn sem verða í liði Íslands í leik kvöldsins.

Nafn · Lið (skráð hjá KKÍ) · Landsleikir

Elvar Már Friðriksson · PAOK, Grikklandi · 65

Hilmar Smári Henningsson · Haukar · 11

Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu · 27

Kristinn Pálsson · Aris Leuuwarden, Hollandi · 28

Orri Gunnarsson · Haukar · 2

Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll · 13

Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar · 62

Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll · 30

Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn · 11

Tryggvi Snær Hlinason · Bilbao Basket, Spánn · 60

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson · Oviedo, Spánn · 24

Ægir Þór Steinarsson (Fyrirliði) · Stjarnan · 82

Þjálfari: Craig Pedersen

Aðstoðarþjálfarar: Baldur Þór Ragnarsson og Pavel Ermolinskij

Fréttir
- Auglýsing -