Hamar lagði Skallagrím í Hveragerði í kvöld í þriðja leik úrslitaeinvígis liðanna í fyrstu deild karla. Hamar ná því aftur yfirhöndinni í einvíginu 2-1, en næsti leikur er í Borgarnesi. Fyrstu tveimur leikjum einvígis liðanna skiptu liðin á milli sín, þar sem Hamar vann fyrsta leik í Hveragerði, en Skallagrímur jafnaði metin í leik tvö í Borgarnesi. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í Subway deildinni.

Karfan spjallaði við Atla Aðalsteinsson þjálfara Skallagríms eftir leik í Hveragerði.
Viðtal / Oddur Ben