Dregið var í undanúrslit Geysisbikarsins nú á hádeginu.
8 liða úrslit karla og kvenna fóru fram síðustu daga og eru 7 lið komin með farseðil tryggan í undanúrslitin sem fara fram í Laugardalshöllinni í febrúar.
Leik Tindastóls og Þórs Akureyri var frestað frá gærkvöldinu þangað til í kvöld og var því einn miði með skástriki í potti dagsins.
Undanúrslitin fara fram 12. og 13. febrúar.
Þau lið sem mætast:
Geysibikar karla
Fjölnir mætir Grindavík
Stjarnan mætir Tindastól eða Þór Akureyri
Geysisbikar kvenna
Haukar mæta Skallagrím
Valur mætir KR