spot_img
HomeBikarkeppniÞessi lið mætast í 32 liða úrslitum VÍS bikarkeppni karla í dag

Þessi lið mætast í 32 liða úrslitum VÍS bikarkeppni karla í dag

Þrír leikir fara fram í 32 liða úrslitum VÍS bikarkeppni karla í dag.

Ármann tekur á móti Njarðvík í Laugardalshöllinni, b lið KR fær Grindavík í heimsókn á Meistaravelli og í Skógarseli eigast við ÍR og Valur.

Dregið var í níu viðureignir í 32 liða úrslitunum, en Haukar, Sindri, Þór Þ., Höttur, Stjarnan, KR og KV sátu hjá þegar dregið var og eru komin áfram í 16 liða úrslit. Seinni sex viðureignir 32 liða úrslitanna fara fram á morgun sunnudag.

Leikir dagsins

VÍS bikar karla – 32 liða úrslit

Ármann Njarðvík – kl. 17:00

KR b Grindavík – kl. 17:00

ÍR Valur – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -