Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals máttu þola tap fyrir Northern Illinois Huskies í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 77-72.
Eftir leikinn er Ball State í 5. sæti MAC deildarinnar með níu deildarsigra og átta töp það sem af er tímabili.
Á 39 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma 20 stigum og 3 fráköstum, en hún setti niður sex af ellefu fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum.
Næsti leikur Thelmu og Ball State er þann 3. mars gegn Central Michigan Chippewas.