Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals lögðu Ohio Bobcast í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 84-74.
Eftir leikinn er Ball State í 4. sæti MAC deildarinnar með 13 sigra og 7 töp það sem af er tímabili.
Á 40 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma Dís 16 stigum, 3 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Thelmu og Ball State er þann 5. febrúar gegn Bowling Green Falcons.