Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals lögðu Buffalo Bulls í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 72-70.
Leikurinn sá þriðji sem Ball State vinnur í röð, en þær eru nú í 6. sæti MAC deildarinnar með 12 sigra og 7 töp það sem af er tímabili.
Á 35 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma 16 stigum, 4 fráköstum, 2 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Thelmu og Ball State er samkvæmt skipulagi þann 3. febrúar gegn Ohio Bobcats.