Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals lögðu Eastern Michigan Eagles í gærkvöldi í bandaríska háskólaboltanum, 83-73.
Eftir leikinn er Ball State í 5. sæti MAC deildarinnar með tvo sigra og tvö töp það sem af er deildarkeppni.
Á 35 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma Dís 10 stigum, 2 fráköstum, 3 stoðsendingum og stolnum bolta.
Næsti leikur Thelmu og Ball State er komandi laugardag 15. janúar gegn Akron Zips.