Thelma Dís Ágústsdóttir og Ball State Cardinals lögðu Central Michigan Chippewas í gær í bandaríska háskólaboltanum, 75-69.
Eftir leikinn er Ball State í 4. sæti MAC deildarinnar með 10 deildarsigra og 8 töp það sem af er tímabili.
Á 33 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Thelma Dís 12 stigum, 2 fráköstum og stolnum bolta.
Næsti leikur Thelmu og Ball State verður jafnframt þeirra síðasti í deild þetta tímabilið, gegn Eastern Michigan Eagles þann 5. mars.