Ísland lagði Eistland í undanúrslitaleik undir 20 ára á Norðulandamótinu í Södertalje, 85-78. Liðið mun því leika til úrslita á mótinu á morgun, en í úrslitum munu þeir mæta sigurvegara viðureignar Danmörkur og Finnlands.
Karfan spjallaði við Jonathan Sigurdsson leikmann liðsins eftir leik í Södertalje. Jonathan er bæði íslenskur og bandarískur, hefur alist upp í Bandaríkjunum, en þetta er í fyrsta skipti sem að hann leikur fyrir íslenska landsliðið.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil