Lykilleikmaður Njarðvíkur Dwayne Lautier mun vera frá keppni næstu sex til átta vikur samkvæmt heimildum Vísis.
Dwayne mun hafa brotnað á hendi í fyrri hálfleik í tapi liðsins gegn ÍR í síðustu umferð Bónus deildarinnar. Hann mun þó hafa klárað leikinn, en ljóst sé nú að hann þurfi á aðgerð að halda. Samkvæmt heimildum mun hann fara í þá aðgerð nú í vikunni og verður hann um tvo mánuði að jafna sig.