Fjölnir lagði ÍA í Dalhúsum í kvöld í fyrsta leik 8 liða úrslitaeinvígis liðanna í fyrstu deild karla, 91-86. Fjölnir tekur því 1-0 forystu í einvíginu, en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig í undanúrslitin. Næst eigast liðin við komandi mánudag 8. apríl á Akranesi.
Karfan spjallaði við Nebojsa Knezevic þjálfara ÍA eftir leik í Dalhúsum.