Atlanta Hawks leikmaðurinn Thabo Sefolosha er fótbrotinn eftir átök við lögreglu fyrir utan skemmtistað í New York. Sefolosha og annar Hawks leikmaður, Pero Antic lentu þar í átökum við lögreglu vegna þess að þeir neituðu að yfirgefa svæðið eftir stunguárás á annan NBA leikmann, Chris Copeland sem leikur með Indiana Pacers.
Sefolosha er brotinn á ökkla og verður frá það sem eftir lifir leiktíðarinnar.
Antic og Sefolosha voru beðnir sex sinnum að yfirgefa svæðið áður en til átakanna kom og þeir handteknir í kjölfarið. Sefolosha hefur kært lögreglumennina fyrir harðræði.
Mynd: Washington Post.