Keflavík lagði Breiðablik í kvöld í Subway deild kvenna, 73-58. Eftir leikinn er Keflavík í 5. sæti deildarinnar með 14 stig á meðan að Breiðablik er í 6. sætinu með 10 stig.
Karfan spjallaði við Telmu Lind Ásgeirsdóttur leikmann Breiðabliks eftir leik í Blue Höllinni. Telma átti ágætisleik fyrir Blika þrátt fyrir tapið, skilaði 12 stigum, 6 fráköstum og 3 stoðsendingum á rúmum 29 mínútum spiluðum.