Benedikt Guðmundsson verður næsti þjálfari Tindastóls samkvæmt heimildum vefmiðilsins mbl.is.
Benedikt var síðustu tímabil þjálfari Njarðvíkur í Subway deildinni ásamt því að hafa verið landsliðsþjálfari kvenna. Þá hefur hann áður stýrt karla og kvennaliði KR, Grindavík, Þór á Akureyri og Þór frá Þorkákshöfn.
Benedikt gerði vel með Njarðvík á nýafstöðnu tímabili. Liðið fór alla leið í oddaleik undanúrslita gegn verðandi Íslandsmeisturum Vals og var hann fyrr í dag valinn þjálfari ársins á árlegu lokahófi KKÍ.