spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaTekur slaginn í Stapagryfjunni

Tekur slaginn í Stapagryfjunni

Njarðvík hefur á nýjan leik samið við Ena Viso fyrir komandi tímabil í Bónus deild kvenna.

Ena er 31 árs danskur bakvörður sem lék með Njarðvík á síðustu leiktíð og skilaði 13 stigum, 7 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik.

„Viso kemur með reynslu inn í bakvarðasveitina okkar en hún ásamt Hesseldal og Dinkins leiða áfram ungan og efnilegan hóp í Njarðvík á komandi tímabili. Ég sá nokkuð til Viso á síðustu leiktíð og tel hana vera mikilvægan liðsmann fyrir komandi verkefni hjá okkur,” sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkurliðsins.

Fréttir
- Auglýsing -