Í samtali við VF.is segist Teitur vera áhyggjulaus fyrir kvöldið og jafnframt að það sé komin tími á sigur á heimavelli en Njarðvíkingar hafa enn ekki sigrað leik þar í úrslitakeppninni í ár. Hinsvegar hafa tveir síðustu leikir Njarðvík og KR í úrslitakeppninni farið í tvölfalda framlengingu.
„Við erum ósáttir við margt í okkar leik frá því síðast. Við urðum smá hikandi í síðari hálfleik og það fór alveg með leikinn hjá okkur. Við höfum verið að vinna í því síðan. Við viljum sýna enn meiri ákafa sóknarlega, ekki bara varnarlega,“ sagði Teitur í samtali við VF.is
„Við létum KR ýta okkur út með harðri vörn og grimmd. Það vantar smá sjálfstraust hjá okkur að rjúka bara framhjá þeim, því við höldum því fram að við séum fljótari en þeir. Þannig að þetta er spurning um hugarfar.“ bætti Teitur við. Viðtalið í heild sinni má lesa hér.
Mynd: Teitur og Aron sonur hans á góðri stundu.