spot_img
HomeFréttirTap í fyrsta leik hjá Zaragoza (Uppfært)

Tap í fyrsta leik hjá Zaragoza (Uppfært)

 Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu fyrsta leiknum nú rétt í þessu gegn Real Madrid 84:76 í fyrsta leik liðanna í undan úrslitum um spænskatitilinn.  Jón lék ágætlega í fyrri hálfleik og setti niður 7 stig í leiknum og Zaragoza voru vel inní leiknum fram að því og aðeins 2 stig sem skildu liðin í hálfleik. En í þriðja leikhluta tóku Real öll völd og komust í 13 stiga forystu sem að Jón Arnór og félagar náðu ekki að brúa.
 
Myndband hefur verið sett inn af tilþrifum leiksins þegar Rudy Fernandez leikmaður Real setti niður nokkuð huggulega Alley-oop troðslu en hún gæti hafa reynst honum dýrkeypt þar sem kappinn lenti illa og fór haltrandi af velli og spila ekki meir. 
Fréttir
- Auglýsing -