Tracy McGrady hefur sagt skilið við NBA deildina og eltist nú við síðustu seðlana sem veifað verður framan í hann á ferlinum. Álasi honum hver sem vill en í Kína eiga þeir dollara og eru tilbúnir að greiða útbrunnum NBA stjörnum nóg af þeim fyrir að mæta á svæðið og sýna hvað þeir eiga eftir á tanknum. Stephon Marbury lagðist í þennan víking fyrir um 2 árum síðan og nú hefur Tracy McGrady traðkað sömu spor og spilar þar með Qingdao DoubleStar Eagles
Nú í síðustu viku álpaðist einn leikmaður sem McGrady var að dekka að setja þrist “í andlitið” á T-Mac. Leikmaðurinn kínverski stoppaði ekki þar heldur reif hann upp “Mutombo” takta og veifaði vísifingri í andlitið á McGrady eftir skotið, svona aðeins til að nudda. Alls ekki góð hugmynd því næsta sem skeður er að T-Mac lætur vaða einn þéttingsfastann olnboga í brjóstið á leikmanninum með þeim afleiðingum að Kínverjinn fór beint í gólfið.