Þriðji leikur úrslitaeinvígis Hamars/Þórs og KR í umspili um sæti í Bónus deildinni fór fram í Þorlákshöfn í kvöld.
KR hafði unnið fyrstu tvo leiki einvígis liðanna og tryggði sér sigur í seríunni með nokkuð sterkum sigri. Leikur kvöldsins var í járnum fyrstu þrjá fjórðungana, en með sterkri frammistöðu í þeim fjórða gerði KR útum leikinn, 63-72.
Karfan spjallaði við Perlu Jóhannsdóttur leikmann KR eftir leik í Þorlákshöfn.
Viðtal / Oddur Ben