spot_img
HomeFréttirSveinn og Jóhann sigurvegarar á golfmóti körfuboltamanna

Sveinn og Jóhann sigurvegarar á golfmóti körfuboltamanna

 
Á dögunum fór fram hið árlega golfmót körfuboltamanna í blíðskaparveðri og var þetta í þrettánda sinn sem það er haldið. Nú var það haldið á Víkurvelli í Stykkishólmi en þar fór einnig fyrsta mótið fram 1998. Þá voru keppendur 13 en nú voru þeir 66 og komust færri að en vildu, því miður. Þar sem mótið var haldið nú á níu holu velli þá er takmarkað hvað er hægt að hafa marga í mótinu þar sem allir eru ræstir út í einu.
Margra ára uppbyggingu Víkurvallar er nú lokið (var síðan vígður daginn eftir) og þótti því tilhlíðilegt að halda mótið þar og einnig í tilefni þess að Snæfell tók báða stóru titlana í vetur. Glæsilegur Víkurvöllur skartaði sínu fegursta á keppnisdegi og var almenn ánægja með völlinn.
 
Úrslit án forgjafar:
Jóhann P. Andersen 29 punktar
Björgvin Ragnarsson 27 punktar
Finnur Jónsson 26 punktar
 
Úrslit með forgjöf:
Sveinn Arnar Davíðsson 41 punktur
Davíð Þór Jónsson 36 punktar
Ingvar S. Jónsson 33 punktar
 
Fern nándarverðlaun voru veitt og svo var einnig best klæddi keppandinn verðlaunaður sem var Hlynur E. Bæringsson. Að lokum var fjöldi verðlauna dreginn úr skorkortum keppanda. Verðlaun gáfu m.a. eftirtaldir: Góa , Grillbúðin, Strendingur, VÍS, er þeim þakkað fyrir stuðninginn.
 
Mót þetta hefur vaxið smátt og smátt með árunum og hefur skapað sér fastan sess hjá körfuboltakylfingum og er afar ánægulegt tækifæri fyrir gamla jafnt sem unga körfuboltamenn að hittast á öðrum vettvangi en á körfuboltavellinum og rifja upp góðar stundir.
 
Ríkharður Hrafnkelsson
mótsstjóri
 
Ljósmynd/ Hólmarinn og heimamaðurinn Sveinn Arnar Davíðsson fór með sigur af hólmi í keppni með forgjöf.
Fréttir
- Auglýsing -