Sundsvall Dragons náðu í gær sex stiga forystu í sænsku úrvalsdeildinni þegar Íslendingaliðin Sundsvall og Norrköping áttust við. Hlynur og Jakob höfðu þar betur gegn Pavel 71-65.
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall með 15 stig eins og Michael Cuffee. Jakob gaf einnig 5 stoðsendingar og tók 3 fráköst. Hlynur Bæringsson bætti svo við 8 stigum og 8 fráköstum. Pavel gerði 7 stig í liði Norrköping, tók 3 fráköst og var með 2 stoðsendingar.
Eftir leikinn í gær er Sundsvall með 26 stig á toppi deildarinnar en Norrköping er í 4. sæti með 18 stig.
Mynd/ Jakob var annar af tveimur stigahæstu leikmönnum Sundsvall gegn Norrköping í gær.