spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaSubway deild karla: Þór með besta sóknarliðið, Keflavík bestir á varnarhelmingi vallarins...

Subway deild karla: Þór með besta sóknarliðið, Keflavík bestir á varnarhelmingi vallarins og Blikar spila hraðast

Körfuboltatölfræðingurinn Hörður Tulinius hefur reiknað út stöðu liða Subway deildar karla eftir fyrstu 10-11 umferðirnar útfrá því sem í daglegu tali þekkist sem tölfræði fyrir lengra komna (e. advanced statistics) og þekkist víða í hinum stóra heimi körfubolta.

Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius

Samkvæmt greiningunni er Þór besta lið deildarinnar með 11,6 í Net Rating. Næst á eftir þeim kemur Njarðvík með 9,1, og Keflavík í því þriðja með 8,5. Versta lið deildarinnar eru Þór Akureyri með -20,6 í Net Rating, en þar undan er Vestri með -9,3 og ÍR þriðja versta liðið með -6,9.

Á sóknarhelmingi vallarins eru Þórsarar bestir, með 3,3 í einkunn, Njarðvík fyrir aftan þá með 4,3 og Breiðablik með þriðju bestu sóknina, 4,4. Versta sókn deildarinnar er hjá Þór Akureyri, en einkunn þeirra er 10,3 og næst versta sóknin er í Grindavík, 6,2.

Á varnarhelmingi vallarins ber Keflavík svo höfuð og herðar yfir önnur lið, með 2,9 í einkunn, en versta vörnin hingað til hefur verið hjá Breiðablik, 10,8.

Þá er þarna einnig að finna útreikninga fyrir hraða liðanna. Samkvæmt útreikningum spilar Breiðablik langsamlega hraðast 88.6 sóknir í leik á meðan að Valur spilar hægast, 76.5 sóknir að meðaltali í leik.

Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius

Fyrir frekari útskýringar á flokkum fjórþáttagreiningarinnar er hægt að lesa hér

Hérna er taflan á Grid.is

Fréttir
- Auglýsing -