LeBron James hefur verið mjög upptekinn af ímynd sinni innan NBA deildarinnar sem og utan hennar bróðurpart ferils síns. Fyrir þessa leiktíð íhugaði hann lengi vel hvernig hann gæti sent þau skilaboð til stuðningsmanna sinna og yngri leikmanna í deildinni að hann er fagmaður – innan sem utan vallar.
Hann er mun minna með ennisbandið sem hann hafði alltaf verið með á hausnum frá því hann var í high school. Hann spilar nú í þrengri búning og styttri stuttbuxum við. Hann hugsar einnig mun meira um útlitið utan vallar og mætir nú alltaf til leiks í hnepptum jakka eða jakkafötum í stað götufatnaðar.
Nú er bara að sjá hvort þetta skili titli til Cleveland.