Ísland tekur á móti Georgíu í 2. glugga seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins 2023 næsta föstudag 11. nóvember. Fyrir leikinn er staða Íslands nokkuð sterk í L riðil, liðið er með fjóra sigra, tvö töp og er í 3. sæti, en efstu þrjú lið riðilsins komast á lokamótið, en sigur á föstudag myndi fara langleiðina með að tryggja farmiðann.
Hérna er 16 leikmanna hópur Íslands
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu fyrr í dag og spjallaði við leikmann Íslands Styrmi Snæ Þrastarson um hlutverk hans í liðinu og leikina tvo gegn Georgíu og Úkraínu. Styrmir hefur verið hluti af íslenska landsliðinu síðustu misseri, en hefur aldrei leikið fyrir liðið á heimavellinum í Laugardalshöllinni þar sem að húsið hefur ekki verið í standi fyrir keppnisleiki.
Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil