Nýliðar Hauka lögðu Þór í kvöld í 2. umferð Subway deildar karla, 90-84. Haukar hafa því unnið fyrstu tvo leiki mótsins á meðan að Þór hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum.
Styrmir Snær Þrastarson var á nýjan leik í leikmannahópi Þórs eftir árs fjarveru í háskólaboltanum í Bandaríkjunum. Karfan spjallaði við hann eftir leik og spurði hann út í leikinn og heimkomuna.